Búseti á Norðurlandi

Búseti á Norðurlandi er húsnæðissamvinnufélag.

Fréttir

Breytingar í húsnæðismálum á Íslandi?

 

Ný ríkisstjórn er tekin við.   Mikilvæg atriði í samstarfssamningi stjórnarflokkanna hafa áhrif á starfsumhverfi og framtíðarstefnumótun húsnæðissamvinnufélaga og sjálfseignarfélaga.   Á sama hátt er líklegt að Íbúðalánasjóður og viðskiptabankarnir muni sækja umboð til að útfæra úrræði og leiðir til endurfjármögnunar fyrir slík félög – með sambærilegum hætti og lagt er upp fyrir einstaklinga og fjölskyldur.   

 

Hækkun vaxtabóta og hækkun húsaleigubóta eru atriði sem koma búsetum og leigjendum íbúða hjá Búseta á Norðurlandi strax til góða.

 

Það hlýtur að teljast til mikilsverðra tíðinda fyrir húsnæðissamvinnufélögin að ríkisstjórnin  hyggst innleiða nýja skipan húsnæðismálaað Norrænni fyrirmynd og það er þar með bókstaflega tekið fram að, húsnæðissamvinnufélög/ búseturéttarfélög og sjálfseignarfélög muni  fá aukið rými til að bjóða upp á hagkvæmt húsnæði fyrir almenning.   Þess má einnig vænta að samræming verði gerð á kerfi vaxtabóta og húsaleigubóta þannig að mismunandi fjölskyldusamsetning njóti jafnræðis – óháð eignarformi íbúðar.

 

Á næstunni munu forráðmenn húsnæðissamvinnufélaga hittast og ræða málin og vonandi skapast fljótt forsendur fyrir því að félögin nái fundi með félagsmálaráðherra og stjórnendum Íbúðalánasjóðs þannig að unnt verði að taka ákvarðanir um rekstur og verðlagningu til næstu mánaða.

Nú reynir á okkur sem störfum fyrir Búseta á Norðurlandi og önnur húsnæðisfélög að vinna með ríkisstjórn og Alþingi að því að fjölga tækifærum almennings til að tryggja sér hóflega dýrt, gott og öruggt húsnæði til lengri tíma.

(Úr samstarfssamningi ríkisstjórnarflokkanna)

Greiðslu- og skuldavandi heimila

 

Djúp niðursveifla í kjölfar bankahrunsins hefur skapað misgengi á milli greiðslubyrði og greiðslugetu margra heimila í landinu. Þetta misgengi verður að leiðrétta með lækkun á greiðslubyrði þeirra sem verst standa þar til verðmætasköpun atvinnulífsins tekur aftur að aukast. Markmið ríkisstjórnarinnar er að koma í veg fyrir að tímabundinn greiðsluvandi leiði til vanskila og gjaldþrots, svo sem með hækkuðum og breyttum vaxtabótum og húsaleigubótum.

 Lykilatriði er að tryggja húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga.

Greiðslujöfnun sem nú nær bæði til verðtryggðra og gengistryggðra lána gerir kleift að laga greiðslubyrði að lækkandi tekjum. Þá gera ný lög um greiðsluaðlögun sem samþykkt voru á síðasta þingi það mögulegt að taka á vanda þar sem fyrirsjáanlegt er að greiðslu- og skuldabyrði verði skuldurum ofviða til lengri tíma litið. Loks gera frystingar greiðslna sem eru í boði hjá lánastofnunum heimilum kleift að bregðast við bráðavanda vegna skyndilegs tekjumissis. Ofangreindum úrræðum þarf að fylgja fast eftir.

 

Efnt verður til sérstaks kynningarátaks á þeim úrræðum sem heimilum í erfiðleikum standa þegar til boða.

Ráðgjafarstofa heimilanna verði efld enn frekar ef þörf krefur til að eyða biðlistum eftir viðtölum og aðstoð við endurskipulagningu á fjárhag heimila og fólks í vanda. Sérstaklega verði hugað að aðgengi íbúa á landsbyggðinni að þjónustu Ráðgjafarstöðvarinnar.

Skuldastaða heimila, greiðslu- og framfærslugeta verði til stöðugs endurmats sem og nauðsynlegar aðgerðir til að koma til móts við heimili í vanda.

Heildarmat á þörf fyrir frekari aðgerðir og tillögur í því efni verði unnar í kjölfar úttektar Seðlabanka Íslands á skuldum og tekjum heimila sem áætlað er að liggi fyrir í síðari hluta maímánaðar. Ákvarðanir um frekari aðgerðir og tillögur verði teknar í samráði við aðila vinnumarkaðarins.

 

Velferð (húsnæðismálin)

Mikilvægt er að allir hafi möguleika á öruggu húsnæði fyrir sig og fjölskyldu sína.

 

Innleidd verði ný skipan húsnæðismála til að búa almenningi sambærilegt öryggi og valkosti í húsnæðismálum og á hinum Norðurlöndunum.

 

Markmiðið er að fólk í húsnæðisleit eigi valkosti með eignar-, leigu- og búseturéttaríbúðum, hvort sem það þarfnast húsnæðis í fyrsta sinn eða síðar á lífsleiðinni. Mismunandi búsetuformum verði gert jafnhátt undir höfði.

 

Staðinn verði vörður um Íbúðalánasjóð, sjálfseignarfélög og frjáls félagasamtök sem tryggja hagstætt húsnæði.

(Leturbreytingar BS 11.maí 2009)



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn