Búseti á Norðurlandi óskar félagsmönnum farsældar á nýju ári
Nýtt ár er gengið í garð. Búseti á Norðurlandi óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum farsældar á þessu nýja ári.
Þrátt fyrir margvíslega óvissu á liðnu ári hefur félagið haldið sjó. Íbúðir félagsins eru í góðri nýtingu og unnið hefur verið að eðlilegu viðhaldi á eldri eignum um leið og kappkostað hefur verið að ljúka frágangi á nýjum eignum.
Stjórn og framkvæmdastjóri munu vinna að endurskipulagningu á fjármögnun félagsins í samstarfi við Íslandbanka og Íbúðalánsjóð og hillir þar í áfanga sem ættu að tryggja öruggan rekstur og hóflega verðlagningu um næstu framtíð.
Þess er vænst að mánaðargjaldið geti haldist óbreytt að öðru leyti en því að breytingar á fasteignamati og álagningu, sem og tryggingariðgjöld og orkureikningar munu koma fram með næstu innheimtu.
Framkvæmdastjóri

