Fundað með stjórnum búsetufélaganna
Í vikunni var stofnað félag fyrir Kjarnagötu 16 og í framhaldinu var fundað með fulltrúum frá öllum búsetukjörnum á Akureyri.
Rætt var um frágang og þjónustu á Kjarnagötusvæðinu - sérstaklega það sem snýr að geymslum og útisvæðum.
Starfsmenn félagsins hafa verið að afla sjónarmiða búsetanna varðandi það hvernig til tókst með hirðingu lóða og svæða síðasta sumar. Við undirbúning vetrarþjónustunnar hefur verið kappkostað að ná sem mestri hagkvæmni en tryggja að þjónustan verði samt sem áður þannig að hún tryggi öryggi íbúanna.
Það er mikilvægt markmið félagsins að bæta viðhaldsþjónustuna þannig að eignir haldi verðmæti sínu og gæðum - og búsetarnir njóti öryggis og þjónustu sem stendur undir eðlilegum kröfum.
Nú verður allt kapp lagt á að ná upp þeim verkum sem hafa dregist og bæta upplýsingaflæði og viðbragðsþjónustu félagsins á næstu vikum og mánuðum.

