Búseti á Norðurlandi

Búseti á Norðurlandi er húsnæðissamvinnufélag.

Fréttir

Gestaíbúð - fyrir félagsmenn Búseta á Norðurlandi

Endaíbúð á 1. hæð í Kjarnagötu 14-101 hefur verið standsett  sem gestaíbúð.

Íbúðin verður einungis leigð í skemmri tíma og til félagsmanna og starfsmanna til að hýsa gesti þeirra.     Stjórn hefur gengið frá reglum til bráðabirgða vegna leigunnar.   Bókanir hjá skrifstofunni eða á tölvupósti.  Greiðist samkvæmt bókun - til staðfestingar.

  1. Íbúðin skal einungis leigð til félagsmanna í Búseta á Norðurlandi og skal auglýst á heimasíðu félagsins.
  2. Íbúðin skal leigjast fullbúin húsgögnum og með lágmarks eldhúsáhöldum og borðbúnaði.
  3. Uppbúin rúm og handklæði skulu standa til boða samkvæmt verðskrá.
  4. Bókunarfyrirvari skal almennt vera 1 vika og annast skrifstofa félagsins allar bókanir;
    • Bókunartímabili skal skipt á vikuna og mögulegt að bóka heila viku – eða frá fimmtudegi til mánudags annars vegar eða frá mánudegi til fimmtudags/föstudags  hins vegar.
    • Með fyrirvara er ekki unnt að bóka skemmri tíma en 2 nætur yfir helgar (aðfaranótt laugardags eða sunnudags).  Ef það er laust með skemmri fyrirvara en einnar viku þá er alltaf mögulegt að bóka fyrir eina nótt.    Í miðri viku er hægt að bóka staka nótt ((mánudag-fimmtudag) – með allt að þriggja vikna fyrirvara.
  5. Verðskrá; miðað við 6 rúm og möguleika á svefnstað fyrir 2 í stofusófa – handklæði á baðherbergi og fyrir hvern svefnstað.   Greiða skal fyrirfram miðað við bókun.

·        Heil vika;  kr. 96.000,- -með 6 uppbúnum rúmum og þrifum á íbúðinni

·        (Stakar nætur frá fimmtudegi til mánudags kr. 25.000,- einungis með minna en vikufyrirvara).

·        Tvær nætur um helgi; kr.55.000,-

·        Þrjár nætur um helgi  kr 75.000,-

·        Fjórar nætur um helgi kr. 85.000,-

·        Stakar nætur í miðri viku kr.20.000,-

·        Tvær nætur í miðri viku kr.35.000,-

·        Þrjár nætur í miðri viku kr. 40.000,-

·        Fjórar nætur í miðri viku kr. 45.000,-

Afsláttur vegna bókunar með skemmra en viku fyrirvara  30%. Hægt að leigja án rúmfata  og með því að gestir þrífa sjálfir mv. 10% lækkað verð.

  1. Íbúðin skal ekki auglýst á opinberum miðlum – né heldur leigð óviðkomandi ef eftirspurn reynist fyrir notkun félagsmanna.
  2. Taka skal þessar reglur til endurskoðunar að loknu þriggja mánaða tímabili


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn