Búseti á Norðurlandi

Búseti á Norðurlandi er húsnæðissamvinnufélag.

Fréttir

Óvissa í þróun húsnæðiskostnaðar

Mikil óvissa ríkir um þróun húsnæðismarkaðarins.   Viðskipti með íbúðarhúsnæði liggja næstum alveg niðri og verðþróunin gefur vísbendingar um lækkanir.    Spár gera ráð fyrir umtalsverðum lækkunum á verði íbúðarhúsnæðis.

Á sama tíma æðir verðbólgan áfram og stýrivextir eru í hæstu hæðum.    Óskert vísitölumæling frá síðasta ári mun leiða til þess að höfuðstóll lána hækkar umfram verðmæti eignanna og greiðslubyrði fer því fram úr því sem getur orðið ásættanlegt.  Þessi þróun kemur við Búseta á Norðurlandi ekki síður en aðra. 

Á árunum 2007 og 2008 hækkuðu vextir á almennum lánum hjá félaginu þannig að hækkun mánaðargjalds hefur þegar farið fram úr vísitöluhækkunum.

Stjórn félagsins leitar nú allra leiða til að stöðva frekari hækkanir og treystir á að Íbúðalánasjóður muni geta komið til móts við félagið á grundvelli þeirra heimilda sem hann hefur þegar fengið.  

Einnig mundi skipta afar miklu máli ef frysting vísitölunnar frá síðasta ári fengist í gegn og síðan yrði tekinn í notkun sanngjarnari viðmiðun verðtryggingar íbúðalána.    Með því yrði greiðslubyrði lána í samræmi við þróun eignaverðs - en ekki öfug við eins og á síðustu áratugum.

Verði ekki gripið inn í vísitölumælinguna stefnir í algert óefni á fasteignamarkaði og verð íbúðarhúsnæðis kann að hrynja varanlega auk þess sem viðskipti verða nær engin.  Með því eru líkur til að byggingariðnaðurinn verði lamaður um margra ára skeið sem mun leiða af sér varanlegt tjón og hafa langvarandi kreppuáhrif í för með sér.

Hér þurfa því margir að leggjast á árar til að sannfæra stjórnvöld um að leggja í aðgerðir sem duga til að skapa jafnvægi á markaði og hóflega greiðslubyrði fjölskyldna.

Framkvæmdastjóri



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn