Búseti á Norðurlandi

Búseti á Norðurlandi er húsnæðissamvinnufélag.

Búsetufélög

Skylt er að stofna búsetufélög (húsfélög) um hvern einstakan byggingaráfanga  - eða fjölbýlishús - eftir ákvörðun stjórnar félagsins.

 

Starfsreglur fyrir búsetufélög Búseta á Norðurlandi hafa verið staðfestar í stjórn félagsins   - fyrsta útgáfa af reglum um starfsemi búsetufélaga er hér undir.

Boðað hefur verið til stofnunar búsetufélaga í öllum byggðahverfum og áföngum þar sem formleg félög verða starfandi og stjórnir hafa verið skipaðar.

Starf stjórna búsetufélaganna við starfsmenn og stjórn félagsins þarf einhvern tíma til að þróast og finna farveg.  Einkum snýst starfið um hirðingu lóða og svæða  - og þjónustu sem félagið veitir og gjald er innheimt fyrir.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn