Búseti á Norðurlandi

Búseti á Norðurlandi er húsnæðissamvinnufélag.

Búsetukostnaður

Búsetugjaldið  samanstendur  af  rekstarkostnaði  íbúðarinnar  svo  sem  fjármagnskostnaði  og  afborgunum  af  öðrum  stofnkostnaði,  fasteignagjöldum,  brunatryggingu,  húseiganda­trygg­ingu,  framlagi  í  viðhaldssjóð,  hita  og  rafmagni  í  sameign  og  í  sumum  tilfellum  hita  í  íbúðunum  þ.e.  í  fjölbýlishúsum  og  fjórbýlishúsum  sem  eru  með  einn  rennslismæli  Hitaveitu.  Rafmagnsnotkun  í  íbúðunum  er  venjulega  undanskilin  og  hiti  í  raðhúsíbúðum  sem  eru  með  rennslismæla  í  hverri  íbúð.   Nýjar íbúðir í fjölbýli eru leigðar með rafmagni og hita inniföldu í búsetugjaldinu.

Allt  ytra  viðhald  á  húsum  Búseta  er  á  ábyrgð  félagsins  svo  og  stofnlagnir  vatns,  hita  og  rafmagns.  Um  innra  viðhald  fer  eftir  staðfestum reglum  þar  um  eins  og  þær  eru  á  hverjum  tíma og ber stjórn að kynna þær fyrir félagsmönnum.

Mánaðarlegt búsetugjald tekur mið af breytingum á vísitölu - en fjármagnskostnaður (vextir) og fasteignagjöld og tryggingar eru stærstu póstar gjaldsins.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn