Búseti á Norðurlandi

Búseti á Norðurlandi er húsnæðissamvinnufélag.

Félagslegar íbúðir - tekju- og eignamörk

Uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða

http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/4732

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út viðmiðunarfjárhæðir um tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða fyrir árið 2010. Fjárhæðirnar hækka um 7,51% í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs á liðnu ári.

Í reglugerð nr. 873/2001 er kveðið á um að sveitarfélög skuli setja sér reglur um úthlutun félagslegra leiguíbúða og hafa þær aðgengilegar almenningi. Við mat á félagslegum aðstæðum er meðal annars litið til húsnæðisaðstæðna viðkomandi, fjölskylduaðstæðna, heilsufars og vinnugetu. Auk þessa er miðað við að tekjur og eignir leigjenda í félagslegu leiguhúsnæði skuli ekki vera yfir tilteknum tekju- og eignamörkum og gefur félags- og tryggingamálaráðuneytið árlega út viðmiðunarfjárhæðir hvað þetta varðar. Breyting viðmiðunarfjárhæða miðastvið árlega hækkun neysluverðsvísitölu 1. janúar ár hvert og nemur hækkunin nú 7,51%.

Frá og með 1. janúar 2010 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, eftirfarandi:

  • Árstekjur einstaklings 3.610.000 kr.
  • Árstekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 604.000 kr.
  • Árstekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 5.055.000 kr. 
  • Eignamörk verða 3.897.000 kr.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn