Búseti á Norðurlandi

Búseti á Norðurlandi er húsnæðissamvinnufélag.

Gjaldskrá í gildi 2009

Stjórn gefur út gjaldskrá félagsins (PDF-skjal) og endurnýjar hana reglulega.  Árgjald og tilteknir aðrir þætti eru staðfestir af aðalfundi hvers árs.

Fyrstu kaup á nýrri íbúð kr. 60.000,-

Fyrstu kaup á eldri íbúð er kr. 50.000,-

Sölugjald er kr. 60.000 og við bætist skilagjald vegna málningar kr 2400 pr. fm. íbúðar sem rýmd er.  Skilaúttekt er innifalin sem og skipti á lyklastykkjum í aðaldyrum íbúðar.

·        Afsláttur af skilagjaldi vegna málningar  er  10% fyrir hvert ár sem búseti hefur setið samfellt  í íbúð Búseta á Akureyri fyrir árið 2007 – en þó greiðir búseti sem yfirgefur íbúð félagsins  aldrei lægri fjárhæð en kr. 60.000. (Gildir fyrir þá sem fara út úr íbúðum félagsins).

Við íbúðaskipti innan félagsinsverði stuðst við sömu verðskrá og þegar einföld kaup og sala fer fram:

·        Kaup á eldri íbúð kr. 50.000

·        Kaup á nýrri íbúð kr. 60.000

·        Sala á búseturétti kr. 60.000

·        Skilagjald vegna málningar kr. 2400 pr. fm íbúðar

·        Afsláttur reiknast af skilagjaldi vegna málningar 10% fyrir hvert heilt ár sem viðkomandi hefur setið í íbúð félagsins og hlutfallslega fyrir hluta úr ári. (Þannig að sá sem setið hefur í íbúð félagsins í 10 ár eða meira – greiðir einungis lágmarksgjald vegna  íbúðaskipta fyrir sölu á búseturéttinum kr. 60.000.)

Sértæk mál sem upp koma og snerta álitaefni skulu lögð fyrir stjórn til afgreiðslu í hverju tilviki.

Úttektargjald (að ósk seljanda/kaupanda) er kr. 20.000,-

Aukaaðildargjald er kr. 2.000,- á mánuði pr búseta sem nýtur þjónustu í íbúðum félagsins (óbreytt).Rekstrarsjóðsgjald til skrifstofu félagsins verður kr.1875 (óbreytt)  St. Kr.3.875 pr. mán

Vegna umsjónar húsa og svæða  og þjónustu við búseta verða innheimt kr. 1500 per. mán per íbúð í Kjarnagötu 12-16.  Í öðrum íbúðum á Akureyri kr. 1000 per mán og í íbúðum félagsins á Húsavík verða innheimtar kr 350 per mán.  

Vegna hirðingar lóða og svæða verða innheimtar kr 1750 þar sem félagið fer með ábyrgð á umsjón og hirðingu

Ný gjaldskrá tekur gildi miðað við innheimtu vegna janúar 2009 – og vegna sölu og uppgjörs frá og með 21.janúar 2009.

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn