Stjórn gefur út gjaldskrá félagsins (PDF-skjal) og
endurnýjar hana reglulega.
Árgjald, og viðhaldsgjöld íbúða og tilteknir aðrir þætti eru staðfestir af aðalfundi hvers árs.
· Kaup á búseturétti kr. 60.000,-
· Sölugjald búseturéttar er kr. 60.000 og við bætist skilagjald frá 1. Júlí 2011, kr 2800 pr. fm. íbúðar sem rýmd er. Skilagjald hækkar 1.jan.2012 og verður þá 1,5% af brunamatsverði íbúðar.
· Afsláttur af skilagjaldi sem verið hefur
í gildi fellur niður frá 1. júlí 2011 þegar félagsmenn fara út úr íbúðum félagsins.
· Skilaúttekt er innifalin sem og skipti á lyklastykkjum í aðaldyrum íbúðar.
Við íbúðaskipti innan félagsins er stuðst við sömu verðskrá og þegar einföld kaup og sala fer fram:
· Kaup á búseturétti kr. 60.000
· Sala á búseturétti kr. 60.000
· Skilagjald vegna íbúaskipta kr. 2800 pr. fm íbúðar frá 1. júlí 2011.Skilagjald hækkar 1.jan.2012 og verður þá 1,5% af brunamatsverði íbúðar.
· Afsláttur reiknast af skilagjaldi fyrir þá búseta sem skipta inna félagsins og skal hann frá 1. júlí 2011 vera 5 % fyrir hvert heilt ár sem viðkomandi hefur setið í íbúð félagsins fyrir árið 2007 og hlutfallslega fyrir hluta úr ári - en vegna skila íbúðar greiðir búseti þó aldrei minna en kr. 40.000 auk sölugjalds.
Við uppgjör búseturéttar greiðir félagið búsetum fyrir viðbótarstofnframkvæmdir, sem þeir hafa stofnað til með samþykki félagsins, í samræmi við staðfestar viðmiðunarreglur á hverjum tíma.
Sértæk mál sem upp koma og snerta álitaefni varðandi uppgjör skulu lögð fyrir stjórn til afgreiðslu í hverju tilviki.
Sérstakt úttektargjald (að ósk seljanda/kaupanda) er kr. 20.000,-
Fast rekstrarsjóðsgjald til skrifstofu félagsins verður kr.2250 pr. mán frá 1.jan.2012
Frá 1.jan.2012 verða innheimtur vegna húsvörslu og umsjónar húsa og svæða og vettvangsþjónustu við búseta kr. 1750 per mán. per íbúð í Kjarnagötu 12-16, kr. 1200 per mán. í öðrum íbúðum á Akureyri og í íbúðum félagsins á Húsavík verða innheimtar kr 350 per mán.
Vegna viðhalds og hirðingar lóða og svæða þar sem félagið sér um þjónusturekstur verða innheimtar kr. 1750 per íbúð á mánuði.
Kynnt á aðalfundi 15. júní 2011

