Reglur um dýrahald í íbúðum
Búseta á Norðurlandi (PDF-skjal)
Eyðublað til umsóknar um dýrahald/skráningareyðublað
Reglur og samþykktir Akureyrarbæjar um dýrahald má sjá hér: http://akureyri.is/stjornkerfid/reglur-samthykktir/annad/
(Meðfylgjandi reglur fela í sér þá breytingu að framvegis geta búsetar fengið takmarkaðar heimildir til dýrahalds í íbúðum félagsins.)
1. Dýrahald í íbúðum Búseta á Norðurlandi er því aðeins heimilt að stjórn félagsins hafi veitt til þess leyfi í samræmi við samþykktir félagsins og reglur þessar.
2. Sækja skal um leyfi til skrifstofu Búseta á Norðurlandi og leggja fram öll þau gögn sem almennt er krafist í samræmi við gildandi lög og reglur um dýrahald, ss. vottorð frá dýralækni og staðfestingu á tryggingum.
3. Leyfisskyld dýr eru eftirfarandi;
a. Hundar
b. Kettir
c. Fuglar (sem ekki eru eingöngu hafðir í búrum)
d. Nagdýr (sem ekki verða eingöngu höfð í búrum)
Ekki er gert ráð fyrir heimildir fyrir öðrum dýrategundum í húsnæði félagsins.
Skylt er að skrá öll önnur dýr sem haldin eru í húsnæði félagsins þó þau séu eingöngu höfð í búrum, þar með talda fugla og einnig nagdýr og fiska. Viðkomandi búseti skal skrá dýr sem haldin verða og skal þar með vera viðbúinn því að umsjónarmaður/starfsmenn félagsins sinni eftirliti með dýrahaldinu – og komi inn á heimili í því skyni.
4. Tímabundið leyfi til dýrahalds fæst gagnvart einhverjum eða öllum eftirfarandi skilyrðum – í eitt ár í senn;
a. Að góðar ástæður séu til dýrahaldsins; þ.e. ef viðkomandi hyggst halda
björgunarhund, þarfnast aðstoðar frá blindrahundi eða aðrar jafngildar.
b. Mikilvægir hagsmunir liggi í því fyrir viðkomandi fjölskyldu t.d. vegna uppeldis
barns eða umönnunar fatlaðra og/eða aldraðra.
c. Að búseturéttarhafi geti tryggt að dýrahald hans valdi ekki ónæði fyrir nágranna – né að það valdi skemmdum á húsnæði og umhverfi.
d. Umsækjandi skilar mynd af viðkomandi dýri sem leyfis er óskað fyrir.
5. Almennt leyfi til hundahalds fæst ekki í fjölbýlishúsaíbúðum Búseta á Norðurlandi sem eru fyrir ofan jarðhæð og ekki heldur á jarðhæð fjölbýlishúsa nema íbúðir hafi sérinngang – óháðan öðrum íbúðum. Um leyfi til að halda kött eða stærri gæludýr í fjölbýlishúsum sem ekki hafa sérinngang skulu gilda þrengri takmarkanir en í öðru húsnæði félagsins.
6. Sækja þarf um leyfi til dýrahalds í einstökum íbúðum Búseta – til stjórnar. Stjórn getur gefið út bráðabirgðaleyfi í nýjum íbúðum. Skrifstofa Búseta gerir öðrum íbúum grein fyrir umsókn/tímabundnu leyfi og gefur kost á athugasemdum og aflar eftir atvikum skriflegs samþykkis áður en afgreiðsla á leyfisbeiðni - eða ósk um framlengingu er tekin fyrir.
Samþykkis íbúa er óheimilt að afla með því að ganga í íbúðir og hitta búseta fyrir einn og einn.
7. Leyfi til að halda dýr í íbúðum Búseta skulu án undantekninga háð eftirfarandi skilyrðum;
a. Dýrið verði aldrei haft úti við nema í/á aflokuðu rými og annars aldrei laust.
b. Dýrið valdi ekki ónæði eða skemmdum
8. Almennt leyfi til dýrahalds í íbúðum er veitt til eins árs í senn og skal endurnýja umsókn árlega með staðfestum gögnum. Framkvæmdastjóri getur síðan veitt framlengingu á gildandi leyfum í eitt ár í senn - hafi ekki borist formleg kvörtun eða athugasemdir vegna dýrahaldsins. Berist kvartanir vegna dýrahalds skal framkvæmdaráð taka afstöðu til afturköllunar á leyfi viðkomandi – og/eða meta hvort forsendur séu til framlengingar á leyfinu og leggja niðurstöðu sína fyrir stjórn.
9. Stjórn Búseta ákveður árlegt leyfisgjald og skal einnig ákvarða fjárhæð og form trygginga sem leyfishöfum skal gert að setja fyrir dýrahaldi sínu.
10. Stjórn búseta hefur undir öllum kringumstæðum umboð til að hlutast til um dýrahald í íbúðum félagsins valdi það óásættanlegu ónæði, skemmdum eða skerði með einhverjum hætti lífsgæði næstu nágranna í húsnæði félagsins. Komi upp einhver skilgreindur og alvarlegur vandi meðal nágranna, t.d. ofnæmi - sem staðfest má rekja til dýrahaldsins – skal stjórn Búseta afturkalla leyfi til dýrahalds og gefa búsetum sanngjarnan fyrirvara til flutnings eða viðbragða. Gildir þá einu hvort um er að ræða leyfisskyld dýr – eða skráningarskyld.
11. Haldi búsetar/leigjendur í íbúðum félagsins dýr án tilskilinna leyfa og skráningar ber umsjónarmanni/framkvæmdastjóra að aðvara viðkomandi og gera stjórn félagsins jafnframt aðvart um hið ósamþykkta dýrahald. Verði ekki bætt úr án tafa eða eðlilegra skýringa þá skal stjórn Búseta grípa til ítrustu viðurlaga – og uppsagnar á búseturétti ef nauðsyn krefur.
Staðfest í stjórn Búseta ______ nóvember 2007

