Búseti á Norðurlandi

Búseti á Norðurlandi er húsnæðissamvinnufélag.

Stefnumótun félagsins

Á stjórnarfundi 30.október 2008 samþykkti stjórn félagsins að taka alla fyrirliggjandi stefnumótun til endurskoðunar - með hliðsjón af gerbreyttum aðstæðum á fasteigna- og fjármálamörkuðum.

Frá bankahruni og til dagsins í dag hefur stjórn látið formlega stefnumótun liggja í hálfgerðum dvala.  Á aðalfundi 2001 er stefnt að því að kynna vinnutillögur stjórnar að endurnýjaðri stefnumótun sem takur mið af áður ófyrirséðum aðstæðum í fjármálalífi og á húsnæðismarkaði.  Gera verður ráð fyrir að stefnuyfirlýsing sitjandi ríkisstjórnar og endurteknar tillögur gagnvart reglum  Íbúðalánasjóðs nái fram að ganga á komandi mánuðum.

Þróunarnefnd félagsins er með því virkjuð að nýju sem undirnefnd stjórnarinnar.  Guðlaug formaður og Ingi Rúnar stjórnarmaður og Ingvar varformaður skipa þróunarnefndina og Benedikt framkvæmdastjóri vinnur með nefndinni

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn