Búseti á Norðurlandi

Búseti á Norðurlandi er húsnæðissamvinnufélag.

Uppgjör á framkvæmdum

Samkvæmt reglum félagsins hafa einstakir búsetar stofnað til viðbótarframvkæmda í og við einstakar íbúðir félagsins.   Oftast hefur það verið samhliða nýbyggingum og þá með viðskiptum við byggingaraðila.  Aukið hefur verið við innréttingum  og eldhústæki felld í innréttingar, vandaðri gólfefni hafa verið keypt - og byggðir sólpallar svo nokkuð sé nefnt.   Ekki hefur verið gengið frá því fyrirfram hvernig slíkar framkvæmdir myndu verða gerðar upp þegar til sölu kæmi af hálfu viðkomandi búseta.

Á grundvelli reynslunnar taldi stjórn nauðsynlegt að setja viðmiðunarreglur (PDF-skjal) varðandi slíkt uppgjör þannig að auðveldara yrði að gæta jafnræðis milli félagsmanna.

Jafnframt hefur stjórn félagsins rætt um að gert verði upp fyrir samþykktar aukaframkvæmdir við alla búseta framvegis  - samkvæmt sérstakri áætlun - og þá á næstu tveimur árum.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn