Búseti á Norðurlandi

Búseti á Norðurlandi er húsnæðissamvinnufélag.

Húsnæðisvalkostur fyrir alla

Tilgangur  húsnæðissamvinnufélaga  er  að  eiga  og  reka  svokallaðar  búsetu­réttaríbúðir.  Búseturéttaríbúðir  eru  leiguíbúðir  sem  þeir  einir  hafa  rétt  til  sem  eru  félagsmenn  í  húsnæðissamvinnufélaginu.  Félagið  starfar  eftir  lögum  nr.66/2003. 

Félagið á og rekur íbúðir á kostnaðarverði.     Með greiðslu 10% stofnverðs eða markaðsverðs sem búseturéttar - eignast félagsmenn aðgang að íbúðum félagsins.  Mánaðargjald er svipað hóflegri leigu á markaði.  Búsetar í almennum íbúðum eiga rétt á vaxtabótum í samræmi við almennar reglur á hverjum tíma og búsetar í félagslegum búseturéttaríbúðum eiga rétt á húsaleigubótum eins og þær ákvarðst á hverju tímabili.

Það er staðfest stefna félagsins að fjölga íbúðum á Akureyri og í Norðurþingi - eftir því sem hagkvæmt reynist og samvinna tekst um við skipulagsyfirvöld.  Einnig er staðfestur áhugi nokkurra sveitarfélaga á Norðausturlandi á því að félagið taki til starfa á fleiri stöðum.

Efnahagshrunið frá því haustið 2008 hefur leitt til þess að nauðsynlegt er að endurskoða alla stefnumörkun og áætlanir félagsins.    Ekki er hins vegar mögulegt að sjá fyrir hvenær slík endurskoðuð stefna og áætlanir gætu tekið gildi - eða hvernig ástand efnahagsmála kann að þróast.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn