Búsetar í íbúðum félagsins geta sagt upp búseturéttinum hvenær sem er með sex mánaða fyrirvara.
Um styttri fyrirvara getur verið að ræða en tæplega styttri en tveir mánuðir, eða sá lágmarkstími sem nota þarf við íbúaskipti og til auglýsingar og úthlutunar og lagfæringa á íbúðinni ef slíkt er nauðsynlegt.
Allar íbúðir félagsins eiga að vera í góðu ástandi miðað við aldur þeirra á hverjum tíma þegar íbúaskipti fara fram.
Fráfarandi búseti fær endurgreiddan upphaflegan búseturétt með verðbótum um leið og búseturétturinn hefur verið seldur öðrum félagsmanni - eða 2-6 vikum eftir að nýr búseti hefur tekið við - og aldrei seinna en tólf mánuðum eftir uppsögn ef ekki hefur tekist að selja búseturéttinn.
Það sem getur rýrt búseturéttareign félagsmanna er slæm umgengni og vanskil á lögbundnum greiðslum félags- og búsetugjalds.
Prentið út eyðublaðið (hér) - og skilið til skrifstofunnar

